flugfréttir

Leggja 500 flugvélum vegna skorts á flugmönnum vestanhafs

- Ellefu svæðisflugfélög („regional airlines“) hafa lagt 483 flugvélum

17. apríl 2023

|

Frétt skrifuð kl. 07:19

Bombardier CRJ-200 þotur frá Endeavor Air í litum Delta Connection í langtímageymslu

Tæplega 500 litlum farþegaflugvélum hefur verið lagt í Bandaríkjunum að undanförnu vegna skorts á flugmönnum vestanhafs.

Um er að ræða 483 flugvélar sem eru í flota svæðisflugfélaganna í Bandaríkjunum sem nefnast „regional jets“ og er bæði um að ræða þotur og skrúfuþotur sem tilheyra ellefu flugfélögum.

Flugfélögin sem hafa lagt flugvélunum eru Skywest Airlines, Air Wisconsin, Endeavor Air, Envoy Air, PSA Airlines, Piedmont Airlines, Mesa Airlines, Horizon Air, GoJet Airlines, Republic Airways og CommuteAir.

Öll þessara flugfélaga hafa haldið uppi áætlunarflugi fyrir stór bandarísk flugfélög á borð við Delta Air Lines, American Airlines, United Airllines og Alaska Airlines en meðal flugvélategunda sem eru komnar í geymslu eru flugvélar af gerðinni Bombardier CRJ900, 700, 200 og 100, De Havilland Canada DHC 8-400 auk Embraer-þotna.

Samtök svæðisflugfélaga í Bandaríkjunum, Regional Airlines Association (RAA), lýstu því yfir í desember sl. að flugmannaskorturinn hefur gert það að verkum að stóru flugfélögin í Bandaríkjunum hafa ráðið flugmenn frá svæðisflugfélögunum til sín sem hefur gert ástandið enn verra fyrir svæðisflugfélögin sem hafa átt í vaxandi erfiðleikum með að manna áhafnir og fellt niður fjölda flugleiða.

Stærsta svæðisflugfélagið, Skywest, hefur til að mynda sett 118 Canadair-þotur í geymslur og þá hefur Endeavor Air, sem annast flug fyrir Delta Air Lines, sett 98 þotur í geymslur.

Erfiðlega hefur gengið að finna flugmenn til þess að fljúga minni farþegaflugvélum í Bandaríkjunum vegna flugmannaskorts

PSA Airlines og Piedmont Airlines, sem bæði fljúga fyrir American Airlines undir nafninu American Eagle, hafa lagt 45 þotum og þá hefur Envoy Air lagt 64 þotum, Air Wisconsin sextán þotum og CommuteAir, sem annast flug fyrir United Airlines, lagt 42 flugvélum.

Þetta hefur orðið til þess að nokkur ný lágfargjaldaflugfélög, sem eru nýkomin á markaðinn, hafa fyllt í skarðið með því að hefja flug á milli minni bæja og meðalstórra borga í Bandaríkjunum og má þar nefna Avelo Airlines, Breeze Airways og Red Way.

Ráðgjafarfyrirtækið Oliver Wyman telur að svæðisflug („regional flights“) gæti verið á undanhaldi bæði vestanhafs og í Evrópu en talið er að fjöldi minni farþegaflugvéla í svæðisflugi í Norður-Ameríku og í vesturhluta Evrópu eigi eftir að fækka úr 2.100 flugvélum í dag niður í 1.700 flugvélar næsta áratuginn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga