flugfréttir
Fraktþota frá Cargolux rak hreyfil ofan í braut í lendingu
Skjáskot af myndbandi sem náðist við flugbraut 06 á Findel-flugvellinum í Lúxemborg
Atvik átti sér stað á Findel-flugvellinum í Lúxemborg um helgina er Boeing 747-400F fraktþota frá Cargolux rak hreyfil ofan í flugbraut í lendingu en þotan fór í fráhvarfsflug („go around“) í kjölfar atviksins.
Þotan var að koma frá Al Maktoum flugvellinum í Dubai sl. laugardag (15. apríl) og var lendingin
í harðari kantinum með þeim afleiðingum að hreyfill nr. 2 snerti flugbrautina.
Flugmennirnir hættu við lendinguna þar sem þotan hafði skoppað eilítið á brautinni og klifraði þotan í 4.000 fet og lenti
loks 15 mínútum síðar.
Erlendum flugfréttamiðlum ber þó ekki saman hvort að báðir hreyflar á vinstri væng þotunnar hafi snert
brautina eða bara annar hreyfillinn.
Atvikið átti sér stað klukkan 16:30 að íslenskum tíma og kemur fram á vefsíðunni Flightradar24.com
að hraði þotunnar í lendingunni hafi verið 174 hnútar en 125 hnútar í seinna skiptið þegar hún lenti
klukkan 16:44.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.