flugfréttir

Air Moldova á barmi gjaldþrots

- Reyna að hefja aftur takmarkað áætlunarflug eftir aflýsingu flugferða

24. apríl 2023

|

Frétt skrifuð kl. 10:36

Airbus A320 þota frá Air Moldova

Flugfélagið Air Moldova er á barmi gjaldþrots og reynir flugfélagið nú að hefja aftur flugrekstur eftir að félagið neyddist til þess að aflýsa öllu flugi um helgina.

Air Moldova lýsti því yfir í seinustu viku að til stæði að aflýsa öllu flugi milli 21. og 25. apríl á þeim forsendum að félagið hefði ekki það fjármagn tiltækt til þess að halda úti flugstarfsemi.

Air Moldova vonast til þess að geta farið að fljúga aftur nauðsynlegustu flugleiðirnar í leiðarkerfinu og er fyrirhugað að fljúga í það minnsta þrjár flugleiðir á dag frá Chisinau til Bologna, Tbilisi og Verona.

Flugfélagið, sem hafði fjórar þotur í flotanum úr Airbus A320 fjölskyldunni, þurfti í mars að skila tveimur þotum aftur til eigenda sinna sem leiddi til þess að félagið þurfti að aflýsa flugferðum.

Air Moldova tók hinsvegar þrjár þotur í kjölfarið á leigu til að koma starfseminni aftur í fyrra horf. Flugfélagið hefur átt í fjárhagserfiðleikum frá því að heimsfaraldurinn braust út árið 2020 auk þess sem innrásin í Úkraínu hafði enn verri áhrif á starfsemina.

Félagið fór fram á aðstoð frá ríkisstjórn Moldóvu en án árangurs og þá fóru flugmálayfirvöld í landinu fram á að félagið myndi skila inn endurgerðri fjárhagsáætlun.

Þar sem að félagið náði ekki að vinna úr vandanum við stjórnvöld og flugmálayfirvöld ákvað félagið frekar að fara í hart og sakar það stjórnvöld um skipulagða niðurrifsherferð gegn félaginu með það að leiðarljósi að hnésetja reksturinn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga