flugfréttir
Þriðjungur A220 flotans úr umferð vegna varahlutaskorts
- Telur að skortur á varahlutum í hreyfla eigi eftir að vara í töluverðan tíma

Airbus A220 þota frá SWISS International Air Lines
Einn þriðji af öllum þeim Airbus A220 þotum sem SWISS International Air Lines hefur í flota sínum hafa verið kyrrsettar að undanförnu vegna skorts á varahlutum.
Carsten Spohr, framkvæmdarstjóri Lufthansa Group, móðurfélag SWISS, segir að
skortur á varahlutum sé vandamál sem eigi eftir að vera viðvarandi á næstu árum og
eigi það eftir að hamla enn frekari umsvifum í kjölfar heimsfaraldursins.
„Ég hef starfað í 30 ár í flugiðnaðinum og ég hef ekki séð neitt þessu líkt“, sagði Spohr
í ávarpi er hann fjallaði um vandamálið þegar afkomuskýrsla Lufthansa Group fyrir fyrsta
ársfjórðung var kynnt.
Vandamálið má rekja til hreyflaframleiðandans Pratt & Whitney sem framleiðir PW1500G
hreyflana fyrir A220 þoturnar en Spohr segir að vandamálið hafi einnig haft áhrif á
Lufthansa sem hefur þurft að kyrrsetja þrjár splunkunýjar þotur úr A320neo
fjölskyldunni í flota félagsins.
Vegna vandans þá hefur SWISS International Air Lines tekið á leigu sex Airbus A220-300
þotur frá airBaltic þar sem lettneska flugfélagið hefur slíkar þotur tiltækar til að leigja út en það flugfélag
hefur orðið fyrir barðinu á innrásinni í Úkraínu og ekki haft þörf fyrir að nota allar
þoturnar í flotanum.
Spohr segir að vandamálið hjá Pratt & Whitney sé keðjuverkandi skortur hjá framleiðendum
sem framleiða íhluti í hreyflana og hafa þeir framleiðendur ekki enn náð að koma sinni
framleiðslu á nægilegt skrið líkt og var fyrir heimsfaraldurinn.


27. mars 2023
|
SAS (Scandinavian Airlines) á í heiftarlegum deilum þessa daganna við japanska flugvélaleigu vegna ágreinings um samkomulag er varðar leigu á Airbus A350 þotu í flota flugfélagsins.

13. apríl 2023
|
Airbus hefur beðið bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) um leyfi til þess að samþykkja sömu eiginleika fyrir Airbus A321XLR þotuna er kemur að snöggri lækkun í neyðartilfellum og gildir fyrir A321neo þo

5. maí 2023
|
Flugfélagið Philippine Airlines segir að erfiðlega gengur fyrir félagið að finna farþegaþotur til að leigja þar sem skortur er orðin á þeim hjá flugvélaleigum.

8. júní 2023
|
Senn styttist í að ungverska lágfargjaldafélagið Wizz Air taki við sinni tvö hundruðustu flugvél en við lok seinasta fjármálaárs, þann 31. mars sl. stóð flugflotinn í 179 flugvélum og samanstendur a

7. júní 2023
|
Þegar er farið að örla á seinkunum á samgöngum í Evrópu og hafa evrópsk yfirvöld varað þá aðila sem eiga hlut að máli að huga sem fyrst að því að grípa í taumana til að draga úr áhrifum sem gæti or

5. júní 2023
|
Rannsóknarnefnd flugslysa í Frakklandi hefur gefið frá sér skýrslu varðandi alvarlegt flugatvik sem átti sér stað á Charles de Gaulle flugvellinum í París fyrir tveimur og hálfu ári síðan.

5. júní 2023
|
Fyrri lendingarkeppni sumarsins á vegum Flugklúbbs Mosfellsbæjar fór fram í gær á Tungubökkum.

5. júní 2023
|
Icelandair hefur undirritað samstarfssamning við Turkish Airlines um sameiginlega farmiðaútgáfu sem þýðir að farþegar fá aðgang að áfangastöðum flugfélaganna beggja á einni bókun í gegnum bókunarkerf

1. júní 2023
|
Nýtt breskt sprotaflugfélag, Global Airlines, hefur fest kaup á sinni fyrstu þotu sem er risaþota af gerðinni Airbus A380 sem mun hefja áætlunarflug frá Gatwick-flugvellinum í London næsta vor.

1. júní 2023
|
SAS (Scandinavian Airlines) hefur opnað fyrir bókanir fyrir fyrstu flugferðir félagsins með rafmagnsflugvél þrátt fyrir að áformað sé að fyrsta rafmagnsflugið verði ekki flogið fyrr en árið 2028.

31. maí 2023
|
Air Greenland hefur neyðst til þess að taka tímabundið á leigu Boeing 777 þotu og Boeing 737 þotu eftir að nýja Airbus A330neo breiðþota félagsins varð fyrir atviki á flugvellinum í Kaupmannahöfn f