flugfréttir

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

- FAA nær biðtíma úr 191 degi niður í 46 daga

23. júní 2023

|

Frétt skrifuð kl. 12:42

Frá ráðstefnunni Air Charter Summit sem fram fór í gær vestanhafs

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Jodi Baker, yfirmaður yfir flugöryggisdeild FAA, sagði í gær á ráðstefnunni National Air Transportation Association Air Charter Summit, að í kjölfar heimsfaraldursins sé nauðsynlegt fyrir stofnunina að endurskoða verkferla og vegna þess álags sem myndast hefur að undanförnu við skráningar og vottanir sé ekki hægt að vinna hlutina með sama móti og gert hefur verið.

Jodi segir að FAA hafi verið að skoða hvaða leiðir eru í boði til þess að hagræða skráningarferlum og verið sé að læra af þeim starfsháttum sem viðgengust í heimsfaraldrinum þegar margir starfsmenn unnu heima og sé nauðsynlegt að endurskoða fundi og samskipti meðal þeirra sem skipta verkum með sér.

Fyrir stuttu var meðal biðtími eftir skráningu loftfara 191 dagur sem sé „óásættanlegt“ en í dag sé biðtíminn komin niður í 46 daga og sé stefnt að því að ná 30 daga biðtíma í september.

Caitlin Locke, yfirmaður hjá Fligt Standards Service, segir að ekki hafi verið gerðar neinar rótttækar breytingar til þess að ná að stytta biðtímann en í stað voru nokkrir litlir þættir lagfærðir eins og að ráða fleira starfsfólk.

Caitlin segir að það sé ekki viðunandi að geta ekki gefið flugrekendum svör við því hvenær þeir megi búast við að fá skráningu á loftfari í gegn svo þeir geti gert áætanir í sínum rekstri.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga