flugfréttir
Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia
- Verða notaðar í flugi milli Jeddah og Jakarta í Indónesíu
Önnur tveggja Boeing 777-300ER þotnanna sem Saudia er komið með í flotann frá Air Atlanta Europe
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
Fyrri þotan hóf Haji-flug undir merkjum Saudia þann 29. maí sl. þar til í lok júní en
verður héðan í frá notið fyrir innanlandsflug í Sádí-Arabíu á meðan hin er nýkomin
til Jeddah eftir viðhaldsskoðun í Addis Ababa en sú þota á eftir að hefja áætlunarflug.
Báðar þoturnar verða notaðar í flugi á milli Jeddah og Jakarta frá og með 2. ágúst næstkomandi
en þoturnar, sem eru báðar smíðaðar árið 2005, eru í eigu flugvélaleigunnar AerCap.
Þoturnar eru innréttaðar með sætum fyrir 492 farþega en aðeins eru fjórtán sæti á fyrsta
farrými. Áður voru þoturnar í flota Royal Flight í Rússlandi en upphaflega voru þær
afhentar nýjar til Emirates árið 2005.
Saudia hefur einnig 35 aðrar þotur í flotanum af gerðinni Boeing 777-300ER en þær taka þó
töluvert færri farþega og koma með sætum fyrir 290 til 413 farþega.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.