flugfréttir
Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð
Þotan var á leiðinni frá Honolulu til Sydney sl. föstudag
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
Þotan, sem er af gerðinni Airbus A330-200, var á leið frá Honolulu til Sydney með 163
farþega innanborðs og tólf manna áhöfn og var komin 5 klukkutíma áleiðis yfir Kyrrahafi
þegar mikil ókyrrð reið yfir með þeim afleiðingum að bæði áhafnarmeðlimir og farþegar
slösuðust.
Læknir var meðal farþega um borð sem náði að hlúa að þeim slösuðu en upphaflega
var um að ræða fjóra farþega og þrjár flugfreyjur. Þotan hélt flugi sínu áfram og lenti í Sydney
eftir 10:30 klukkustunda flug.
Viðbragðsaðilar í Sydney tilkynntu hinsvegar að þeir hafi veitt læknisaðstoð til 12 manns
sem leituðu á sjúkrahús.
Farþegi um borð greindi frá því að hafa séð einn farþega kastast upp í loftið þar sem hann skall
upp í innréttinguna og féll loks niður í gólfið milli sætanna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.