flugfréttir
Þriðji Draumfari ANA fær ekki afhendingarleyfi
- Eftirlitsmenn FAA gera athugasemdir á nokkur atriði
Næsti Draumfari ANA
Þriðji Draumfarinn sem átti að afhenta japanska flugfélaginu All Nippon Airways (ANA) fyrir lok þess árs fær ekki leyfi til að fljúga ferjuflug sitt yfir Kyrrahafið til Japans vegna athugasemda frá Bandarískum flugmálayfirvöldum FAA.
Alltumflug.is hefur heimildir fyrir því að eftirlitsmenn FAA hafi gert athugasemdir á rafmagnsleiðslur vélarinnar
sem hafa ekki verið lagðar rétt og sé það orsök þess að ANA er ekki búið að fá vélina afhenta.
Einnig kom í ljós að aukaaflstöð (APU) á þremur Dreamliner-þotum virkaði ekki í ræsingu og hafa þessi atriði verið færð til
rannsóknar með kröfu um endurbætur.
Vélin stendur í augnablikinu á hlaðinu fyrir framan verksmiðjurnar í Everett og bíður þess að fá grænt ljós og eru sérútvaldir
flugmenn ANA í startholunum tilbúnir að fljúga yfir til Seattle til að sækja vélina.
Boeing sagði samt í vikunni staðráðið í að afhenda vélina til ANA fyrir áramót og hafa þeir því daginn í dag og
á morgun til að standa við þær yfirlýsingar en upphaflega ætlaði Boeing sér að afhenda 5 - 7 Draumfara fyrir árslok.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.