flugfréttir
Emirates byrjar að taka A340-500 úr umferð
- Verða seldar eða rifnar í varahluti
Emirates er byrjað að taka úr umferð Airbus A340-500 vélarnar en verið er að flytja þá fyrstu í brotajárn.
Tim Clark, forstjóri Emirates, segir að um nauðsynlegar aðgerðir sé að ræða þar sem A340-500 vélarnar
séu ekki í samræmi við sparneytnari stefnu félagsins en vélin tekur alls 222 þúsund lítra af eldsneyti meðan
Boeing 777-300ER tekur 181 þúsund lítra.
"Við höfum tekið þá ákvörðun að hætta að fljúga þeim en meðan efnahagurinn er eins og hann er þá
er ekki mikill tilgangur í að nota þessar vélar", segir Clark.
Emirates ætlar sér að reyna að finna kaupanda fyrir vélarnar en ef það tekst ekki verða þær
rifnar niður í varahluti.
Vélarnar voru keyptar nýjar frá Airbus árið 2004 og hefur Emirates notað þær til flugs til áfangastaða
í Ástralíu og til vesturstrandar Bandaríkjanna.
Önnur flugfélög sem hafa A340-500 vélarnar eru m.a. Singapore Airlines, Etihad Airways, Azerbaijan Airlines,
Kuwait Airways og Qatar Airways.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.