flugfréttir

Ljósmynd af Boeing 747 og Cessnu hlið við hlið vekur athygli

- Ástralskur áhugaljósmyndari náði drauma skotinu

brisbane

3. febrúar 2012

|

Frétt skrifuð kl. 12:02

Um 2.000 fet skildu að vélarnar þótt mörgum finnst þær vera hlið við hlið

Ljósmynd sem áhugaljósmyndari í Ástralíu náði á filmu (eða kubb) hefur vakið mikla athygli þar í landi þar sem hann náði tveimur flugvélum fyrir rétt fyrir ofan sig sem mörgum finnst vera skuggalega nálægt hvort annari.

Ljósmyndarinn Joel Thomas var staddur rétt við flugvöllinn í Brisbane og hafði séð á vefsíðu sem sýndi staðsetningar flugvéla að Boeing 747 vél Qantas væri á leið í flugtak. Hann heyrði drunurnar í vélinni og myndavélin lá fyrir framan hann svo hann stökk út til að ná myndum af henni í flugtaki.

Þegar hann byrjar að smella nokkrum myndum af Qantas-vélinni kom það honum mjög á óvart að fá litla Cessnu inn í rammann og fyrir slysni náði hann myndum af vélunum líkt og þær væru að fljúga hlið við hlið. Cessnan var að vísu í um 1.000 feta hæð og Qantas-vélin var í 3.000 fetum að nálgast 3.500 fet.

Trevor Potter, flugmaður Cessnunnar sagði hinsvegar að þeir hafi séð stóran skugga fyrir ofan sig og fundið fyrir nokkrum víbring en sáu takmarkað hvað það var sem fór þarna fyrir ofan þá. Hinsvegar sagðist hann ágætt að geta séð það á ljósmynd hvað það var.

Framkvæmdarstjóri flugklúbbsins Royal Queensland Aero Club segir að ljósmyndin fari nú eins og eldur í sinu milli meðlima klúbbins og flugáhugamanna og það eru allir að tala um þessa mynd sem Joel Thomas náði.











  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga