flugfréttir
Emirates mun taka 20 vélar úr umferð vegna framkvæmda í sumar
- Viðgerðir munu fara fram á báðum flugbrautunum í Dubai
Emirates vill frekar skera niður og kyrrsetja vélar í stað þess að færa sig yfir á nýja flugvöllinn í Dubai
Báðar flugbrautirnar á flugvellinum í Dubai (DXB) verða lokaðar í 80 daga í sitthvoru lagi frá vori fram á sumar vegna viðgerða sem munu fara fram á báðum brautunum.
Emirates segir að félagið muni neyðast til að taka úr umferð allt að 19 til 20 flugvélar á meðan á framkvæmdunum stendur en
nyrðri brautin (12L/30R) verður lokuð frá 1. maí til 31. maí og syðri brautin (12R/30L) verður lokuð frá 21. maí til 20. júlí)
Tim Clark, framkvæmdarstjóri Emirates, sagði í gær að félagið myndi líklega kyrrsetja 20 vélar á meðan sem samsvarar 10% alls flotans.
"Þetta mun hafa áhrif á afkomu félagsins í ár og við verðum bara að taka því", sagði Clark en lokunin hefur þegar
haft þau áhrif að mörg flugfélög hafa endurskoðað sumarflugáætlun sína til Dubai.
Dubai Airports sem á og rekur flugvöllinn í Dubai og nýja Dubai World Central (DWC) hafa boðið flugfélögum
risaafslætti ef þau flytja sig yfir á nýja völlinn á meðan viðgerðirnar fara fram.
"Við erum að bjóða upp á mjög hagstæð lendingargjöld á Al Maktoum International", sagði talsmaður Dubai Airports
í viðtali við Gulf News í janúar en undirtektirnar hafa verið dræmar.
Emirates segir að félagið muni frekar skera niður áætlun sína í stað þess að flytja hluta af starfsemi sinni
yfir á nýja völlinn. Hinsvegar hefur flyDubai og Royal Brunei Airlines fallist á að flytja hluta af starfsemi sinni
yfir á meðan flugbrautarframkvæmdirnar standa yfir.
Alls hafa 15 fraktflugfélög og 28 flugfélög fallist á að færa sig yfir í sumar á meðan viðgerðirnar fara fram.
Flugvöllurinn í Dubai séður úr stjórnklefa í aðflugi að 30L
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.