flugfréttir

Vélar Malev skilað í einni halarófu frá Búdapest til Shannon

- Leigusali í USA ætlar að reyna áframleigja þær strax

5. febrúar 2012

|

Frétt skrifuð kl. 23:09

Vélar Malev á Shannon-flugvelli

Öllum flugflota ungverska flugfélagsins Malev Hungarian Airlines var skilað á föstudagskvöldið til leigusala vélanna sem er bandarískt fyrirtæki, Lease Finance Corporation.

En vélarnar fara hinsvegar ekki þangað og var þeim flogið tímabundið til Írlands og flugu 15 Boeing 737-vélar Malev í beinni halarófu frá Ungverjalandi yfir til Shannon-flugvallar.

Á radar mátti sjá hvar allur flugflotinn flaug hver á eftir annari yfir Norðursjó á leið til eyjunnar grænu.

Eins dauði er annars brauð segir máltakið og það á um Shannon-flugvöll sem mun græða milljónir í leigugjald þar sem vélarnar verða kyrrsettar á flugvellinum og var mikill handagangur í öskjunni á Shannon-flugvelli að undirbúa og hafa stæði tilbúinn fyrir 15 Boeing 737 vélar sem lentu allar á einu bretti á innan við einum klukkutíma.

Talið er að eigandi vélanna, Lease Finance Corporation muni ætla að reyna leigja þær eins fljótt út aftur til annara flugfélaga og kostur er en eitt er víst að hver dagur sem vélarnar verða á Shannon-flugvelli mun telja fyrir leigu á plássi.

Einnig er orðrómur um að Malev hafi gert samkomulag við Lease Finance Corporation að fá að ganga að vélunum sínum aftur ef flugfélagið gæti komið sér á strik á næstunni.

Vélar Malev á radarnum sl. föstudagskvöld á leið til Shannon









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga