flugfréttir

Hulin ráðgáta: Farþegar ná enn að hringja í farsíma ástvina um borð

- Sá bróðir sinn "online" á kínverska samfélagsmiðlinum QQ

11. mars 2014

|

Frétt skrifuð kl. 11:54

Aðstandendur eru mjög reiðir að fá ekki svör hversvegna þeir geta hringt í ásvini sína sem voru um borð í vélinni

Ein dularlfyllsta spurningin sem hefur sprottið upp í erlendum fjölmiðlum síðan í morgun er hversvegna enn er hægt að hringja í farsíma þeirra sem voru um borð í vélinni, fjórum dögum eftir hvarfið.

Samkvæmt fréttum eru 19 ættingjar sem hafa getað hring í ástvini sína og starfsmenn hjá Malaysia Airlines segjast hafa getað hringt í einhverja áhafnarmeðlimi sem voru um borð án þess að neinn svari.

Washington Post segir að einhverjir aðstandendur hafi séð ástvini sína "online" á kínverska samfélagsmiðlunum QQ.

Einn maður segir að hann hafi sé bróðir sinn skyndilega tengdan á QQ, svipað og er notandi á Fésbókinni er tengdur með grænum depli í spjallglugganum.

Þrátt fyrir að skilaboð hafi verið send gegnum spjallið á QQ og hringt hafi verið í nokkra farþega, hefur enginn svarað skilaboðum eða símtölum.

Það að hægt sé að hringja í símana hefur gefið ættingjum nýja von um að þeir gætu verið á lífi en síma- og fjarskiptasérfræðingar segja að það þýði ekki endilega að símann sé að hringja hjá viðtakanda þótt það heyrist að það hringir hjá þeim sem er að reyna ná sambandi.

Alan Spencer, starfsmaður hjá Telecoms í Bretlandi segir að ef símarnir eru í raun og veru að hringja þá er útilokað að þeir séu að hringja ofan í sjónum.

Aðeins er hægt að hringja í farsíma ef það er kveikt á honum, ekki í vatni, rafhlaðan hlaðin og þeir séu á því svæði þar sem samband næst í þá.

Þetta þýðir að ef símarnir eru að hringja þá hefði flugvélin þurft að lenda á landi og á svæði þar sem er farsímasamband.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga