flugfréttir

Búið að hreinsa allan grun af farþegum um borð

2. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 09:57

Khalid Abu Bakar, yfirmaður malasísku rannsóknarlögreglunnar

Búið er að ganga úr skugga og leita allan grun um hvort að farþegarnir um borð í malasísku farþegaþotunni hafi átt hlut að hvarfi vélarinnar.

Rannsókn á bakgrunni hvers einasta farþega er lokið þar sem kannað var hvort að einhver þeirra hafi haft tilefni til að fremja voðaverk eða flugrán og rannsakað var hvort einhver hafi átt við gerðræn vandamál að stríða eða hafi glímt við persónulega erfiðleika.

Khalid Abu Bakar, yfirmaður malasísku rannsóknarlögreglunnar, sagði að niðurstöður hafa leitt í ljós að enginn þeirra passaði við einhverja af þessu fjórum þáttum og er því búið að afskrifa farþegana sem beinir sjónum að flugliðum og flugmönnum vélarinnar en rannsókn á áhöfninni stendur enn yfir.

Khalid Abu Bakar, yfirmaður malasísku rannsóknarlögreglunnar, sagði á fréttamannafundi í Kuala Lumpur að rannsóknaraðilar hallast helst að þeirri kenningu að vélinni var vísvitandi flogið af leið af einhverjum um borð í stað þess að bilun hafi komið upp í vélinni.

Khalid sagði að lögreglan gæti ekki gefið upp fleiri upplýsingar varðandi framvindu mála þar sem það gæti haft áhrif á rannsóknarhagsmuni.

Khalid varaði einnig við því að svo gæti farið að ráðgátan bakvið hvarf vélarinnar muni aldrei leysast og gæti svo farið að rannsóknin mun halda "áfram og áfram" og hvetur hann fólk til að sýna þolinmæði.

Tony Abbott, forsetisráðherra Ástralíu, sagði í útvarpsviðtali í Perth að málið væri "ein stærsta ráðgáta okkar tíma" sem er jafnframt hræðilegur atburður þar sem að 239 fjölskyldur séu eyðilagðar vegna hvarfsins. - "Allur heimurinn og fjölskyldur þeirra sem voru um borð, eiga það inni hjá okkur að við komumst til botns í þessu máli", sagði Abbott.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga