flugfréttir
Tvö skip hafa nú greint þrjú hljóðmerki í sjónum
- Ocean Shield og HMS Echo á leiðinni á staðinn

Bæði kínversk og áströlsk skip hafa náð að greina hljóðmerki á leitarsvæðinu í Suður-Indlandshafi sem mögulega gæti verið frá svörtu kössum malasísku farþegaþotunnar.
Alls hefur þrisvar sinnum heyrst hljóðmerki í sjónum, fyrst á föstudag er kínverska skipið Haixun 01
greindi dauft merki sem virtist vera að fjara út og loks í gær heyrðist röð púlsmerkja sem stóðu
yfir í 90 sekúndur en ekki náðist þó hljóðupptaka af merkjunum.
Loks náði ástralska skipið Ocean Shield í dag að greina torkennilegt hátíðnihljóð í um 550 kílómetra fjarlægð
frá þeim stað þar sem kínverska skipið Haixun 01 greindi púlsmerki í gær með neðansjávarhljóðnema.
Verið er að beina Ocean Shield skipinu á þann stað þar sem kínverska skipið náði í gær að greina púlsmerki og verður það komið á staðinn eftir 10 klukkustundir.
Breska herskipið HMS Echo er einnig á leið á sama stað
en bæði skipin, HMS Echo og Ocean Shield, eru útbúin fullkomnum búnaði til að greina og staðsetja neðansjávarhljóð og Ocean Shield hefur um borð Towed Pinger Locator búnað bandaríska sjóhersins.
"Við þurfum að fá HMS Echo og Ocean Shield skipin á þessi svæði til að staðfesta hvort að þarna sé eitthvað
að finna og hvort þetta séu hljóð frá svarta kassanum", segir Angus Houston, sá sem stjórnar leitaraðgerðunum í
samhæfingarmiðstöðinni í Perth og tók hann einnig fram að þarna
væru mjög mikilvægar upplýsingar á ferðinni sem þyrfti að fá staðfestingu á.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.