flugfréttir

Rússneska leyniþjónustan FSB segir að allir farþegarnir séu á lífi

- Heimildarmaður segir að vélinni hafi verið lent í auðn í Afghanistan

9. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 05:16

Heimildarmaður, sem segist vera meðlimur rússnesku leyniþjónustunnar FSB (Federal Security Service of the Russian Federation), segir að allir farþegarnir, sem voru um borð í malasísku farþegaþotunni, séu á lífi.

Í frétt Daily Mirror segir að vélinni hafi verið rænt og lent í Afghanistan og að farþegunum hafi verið skipt upp í sjö hópa og sé þeim haldið í kofum þar sem þeir fá varla neitt fæði nálægt Kandahar.

Heimildarmaðurinn segir að tuttugu kínverskir "sérfræðingar", sem bjuggu yfir verðmætri og sérhæfðri kunnáttu, hafi verið teknar frá hóp farþeganna og færðir í byrgi í Pakistan og kemur fram að nauðsynlegt hafi verið að koma í veg fyrir að þeir hefðu komist til Peking sem á að hafa verið fyrirskipun frá þeim sem skipulögðu flugránið. Hinir farþegarnir eru í haldi í Afghanistan.

Daily Mirror segir að upplýsingarnar séu m.a. hafðar eftir frétt frá The Sun en þó hafa helstu fréttamiðlar erlendis ekki fjallað um málið en rússneska dagblaðið Moskovskij Komsomolets (mk.ru) sagði í frétt sinni þann 31. mars að malasíska farþegaþotan stæði á afskektum vegi í Afghanistan með brotinn væng eftir mjög harða lendingu.

Í frétt mk.ru segir að margir séfræðingar efist um hvort einhver rök séu fyrir þessum heimildum frá rússnesku leyniþjónustunni þótt að tæknilega hefði alveg verið hægt að lenda flugvélinni á þeim stað sem gefin er upp.

Ástralska skipið Ocean Shield greinir hljóðmerkin aftur

Í nótt bárust þær fréttir að ástralska skipinu Ocean Shield hefði tekist að greina aftur hljóðmerki með Towed Pinger Locator búnaðinum. Tvisvar sinnum komu fram hljóðmerki, í annað skiptið náði að nema merkin í fimm mínútur og í sjö mínútur í seinna skiptið.

Angus Houston, sá sem stjórnar leitaraðgerðum, segir að um mjög stöðug hljóðmerki sé um að ræða sem gefur kost á þvi að þrengja leitarsvæðið enn frekar og gæti því styst í að hægt verði að nota kafbátarvélmennið Bluefin-21 við neðansjávarleit.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga