flugfréttir
Emirates færir sig ekki vegna flugbrautarframkvæmda
- Átta flugfélög munu færa sig yfir á nýja Dubai World Central á meðan
Frá flugvellinum í Dubai
Framkvæmdir á flugbrautunum á Dubai-flugvellinum munu hefjast þann 1. maí og hafa átta flugfélög fallist á að færa starfsemi sína á meðan yfir á nýja Dubai World Central flugvöllinn.
Framkvæmdirnar munu taka 80 daga en Emirates mun ekki færa starfsemi sína yfir og en félagið tilkynnti í febrúar að Emirates þyrfti að taka 19 til 20 flugvélar úr umferð á meðan á framkvæmdirnar standa yfir.
Flugfélögin átta sem færa sig yfir eru flydubai, PAL Express, Jet Airways, Royal Brunei Airlines, Yemenia Airlines,
Equatorial Congo Airlines, Malaysia Airlines og Ural Airlines og munu þau blandast í hóp þeirra
sex flugfélaga sem þegar fljúga um Dubai World Central nú þegar.
Þau flugfélög sem þegar fljúga um DWC eru Wizz Air, Gulf Air, Jazeera Airlines, Qatar Airways, Eastern Horizon Airlines og
Eastern SkyJets.
Flug um Dubai-flugvöllinn mun skerðast um 26 prósent en reynt verður að tryggja að 74% af flugumferð um Dubai-flugvöllinn
muni fara um þá einu flugbraut sem verður í gangi hverju sinni en framkvæmdir munu eiga sér stað á báðum brautunum
til skiptis.
Framkvæmdir á syðri flugbrautinni hefjast þann 1. maí og stendur yfir til 31. maí og framkvæmdir á norðurbrautinni stendur
yfir frá 31. maí til 20. júlí.
Rúta mun ganga milli Dubai-flugvallarins og Dubai World Central á hálftímafresti til að tryggja að tengiflugsfarþegar
geti komist greiðlega milli staða.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.