flugfréttir
Bandarísk flugfélög með eldri vélar en þau miðausturlensku
MD-80 vél American Airlines
Flugfélög í Bandaríkjunum hafa mörg hver eldri flugvélar í flota sínum m.a.v. flugfélög í Miðausturlöndum á borð við Emirates, Etihad Airways og Qatar Airways.
Það breytir því þó ekki að eldri vélar eru alveg jafn öruggar en þær nýju nema þær eru einfaldlega eldri, eyða meira eldsneyti
og eru óhagkvæmari í rekstri fyrir flugfélögin.
Samt sem áður eiga flest flugfélögin vestanhafs von á nýjum vélum í flota sinn á næstu árum en t.a.m. á
American Airlines von á 464 nýjum vélum, Delta Air Lines á von á 203 vélum, United mun fá 269 vélar afhentar bæði
frá Boeing og Airbus og Southwest Airlines væntir þess að fá 320 vélar af gerðinni Boeing 737 MAX, 737-800 og 737-700.
Það flugfélag sem hefur yngsta flugflotann af bandarísku flugfélögunum er Virgin America en meðal aldur flota þess
félags eru 5 ár en Allegiant Air hefur elsta flotann með meðal aldur upp á 22 ár.
Hér er listi yfir meðal aldur 15 flugfélaga í Bandaríkjunum
Virgin America - 5 ár
Spirit Airlines - 5,2 ár
Republic Airways - 5,5 ár
jetBlue - 7,4 ár
Alaska Airlines - 9,6 ár
Hawaiian Airlines - 10 ár
AirTran - 10,9 ár
SkyWest - 11 ár
Southwest Airlines - 11,7 ár
US Airways - 12,1 ár
American Airlines - 13,6 ár
United Airlines - 13,6 ár
Delta Air Lines - 16,9 ár
Allegiant Travel - 22 ár
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.