flugfréttir
Boeing 757 vél Delta máluð í gömlu litunum
N608DA í lendingu á Los Angeles (LAX) þann 20. janúar árið 2001. Á myndunum að neðan má sjá að hún er komin í gömlu litina aftur
Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines hefur lokið við að mála eina af Boeing 757 vélum félagsins í þeim gömlu litum eins og vélar félagsins litu út á sjötta áratugnum.
Um er að ræða retró-litina "Upright Widget" sem Delta Air Lines kynnti til sögunnar árið 1966 sem er langlífasti búningur
félagsins en vélar félagsins voru í þessum litum í yfir 30 ár eða til ársins 1997 er "red dash" litirnir voru kynntir.
Boeing 757 vélin sem var máluð í gömlu litunum ber skráninguna N608DA en hún hafði þessa sömu liti árið 2001 og voru seinustu vélarnar málaðar í nýja liti árið 2004.
Mörg flugfélög hafa gert það undanfarið að taka eina vél í flota sínum sem eru málaðar í gömlum litum en mörg af gömlu flugfélögunum hafa gengið í gegnum margar lita- og útlitsbreytingar gegnum tíðina.
N608DA nýmáluð í gömlu litunum á flugvellinum í Atlanta sl. helgi
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.