flugfréttir
Ástandið í Úkraínu hefur áhrif á flugið í landinu
Frá flugvellinum í Kiev
Óeirðirnar og ástandið í Úkraínu er farið að hafa áhrif bæði á flugfélögin í landinu og einnig önnur flugfélög sem fljúga til landsins.
Vegna óvissu með framtíðarhorfurnar á næstunni og frekari uppþot í Úkraínu hefur farþegum snarfækkað
og hafa ferðaskrifstofur í öðrum Evrópulöndum hvatt ferðamenn til að ferðast ekki til landsins nema nauðsynlegt sé.
Flugfélagið Ukraine International Airlines hefur þurft að skera niður vikuleg flug úr 345 flugferðum niður
í 305 ferðir vegna samdráttar en nú hefur félagið t.a.m. hætt öllu flugi milli Kænugarðs og borgarinnar Simferopol á Krímskaga.
Þá hefur Wizz Air Ukraine einnig þurft að draga saman seglin en félagið ætlaði sér að opna bækistöð
í borginni Lviv þann 30. apríl og hefja þaðan flug til Barcelona, Napólí, Kutaisi, Tel Aviv, Rómar og til Valencia en hætt hefur verið
við þau áform í bili.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.