flugfréttir
Mögulegt brak rekur á land á vesturströnd Ástralíu
- Málmbúturinn reynist vera 2,5 metrar á lengd

Málmhluturinn fannst við vesturströnd Ástralíu skammt frá bænum Augusta
Torkennilegum hlut skolaði á land á vesturströnd Ástralíu en verið er að skoða hvort að um sé að ræða brot úr flaki malasísku farþegaþotunnar.
Lögreglan í Ástralíu hefur lagt hald á brakið sem fannst við strendur Western Australia, um 10 kílómetra austur
af bænum Augusta en samkvæmt Western Australian News eru hluturinn 2,5 metrar á lengd og er hann úr málmi.
Fram hefur komið að það var einstaklingur, sem var að ganga meðfram ströndinni, sem kom auga á hlutinn.
"Þetta kemur ekki á óvart - ef það er eitthvað brak úr vélinni þá myndi það einmitt skola upp á land við vesturströnd Ástralíu", segir
Joe Francis, neyðarþjónusturáðherra Ástralíu.
Samkvæmt fréttum SkyNews voru einnig teknar myndir af hlutnum sem hafa verið sendar til rannsóknarnefndar
í Malaysíu en samgönguöryggisnefnd Ástralíu (ATSB) hefur einnig myndirnar til skoðunar og er nú rannsakað hvort
um sé að ræða hluti sem tengjast vélinni.
Að öðru leyti hefur sjálfvirka kafbátavélmennið Bluefin-21 lokið við að kortleggja 80% af sjávarbotninum
á því svæði þar sem sennilegast þykir að vélin hafi hrapað í sjóinn en í dag er annar dagurinn þar sem ekki hefur
verið hægt að halda kortlagningunni áfram vegna hitabeltisstormsins Jack sem gengur fyrir svæðið.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.