flugfréttir

Leitin að malasísku vélinni hafin að nýju eftir stutt hlé

- Bilun í kafbátavélmenninu Bluefin-21 gæti tafið leit um fjóra daga

14. maí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 23:24

Leit hófst að nýju í gær með sjálfvirka kafbátarvélmenninu Bluefin-21 í gær

Tæknilegir örðugleikar hafa valdið töfum á áframhaldandi leit af malasísku farþegaþotunni sem hófst að nýju í Suður-Indlandshafi í gær.

Ástralska skipið Ocean Shield er mætt aftur út á Suður-Indlandshaf til að halda áfram að leita að vélinni með sjálfvirka kafbátavélmenninu Bluefin-21 en skipið hefur sl. daga verið í landi til að sækja vistir.

Skipið kom á leitarsvæðið í gær en Bluefin-21 kom aftur upp á yfirborðið eftir aðeins 2 tíma í sjónum eftir að bilun kom upp en undir venjulegum kringumstæðum á kafbáturinn að vera í 16 klukkustundir við leit í hvert skipti áður en það snýr aftur upp á yfirborðið.

Leit mun halda áfram á hafsbotni á því svæði þar sem hljóðmerki greindust í sjónum sem talin eru hafa komið frá svörtu kössum vélarinnar en yfirvöld í Ástralíu segjast vera frekar sannfærð um að verið sé að leita á réttu svæði með tilliti til útreikninga sem gerðir voru út frá upplýsingum frá gervihnettinum Inmarsat-3.

Ástralska skipið Ocean Shield kom á leitarsvæðið í gær eftir að hafa sótt vistir til Ástralíu

Leit verður haldið áfram með Bluefin-21 þar til að búið verður að ganga frá samningum við einkaaðila sem verða fengnir til að framkvæma leit með kafbátabúnaði sem getur kafað á meiri dýpi en 4.500 metra sem er mest dýpt sem Bluefin-21 getur náð við kortlagningu á hafsbotninum.

Á meðan hafa sérfræðingar farið aftur vandlega yfir öll gögn frá gervitunglum til að ganga úr skugga um að leit hafi farið fram á réttu svæði.

Tæpar 10 vikur síðan að vélin hvarf

Á morgun verða komnar 10 vikur frá því að flug MH370 hvarf á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking og hefur ekkert spurst til vélarinnar, ekkert brak fundist á reiki á sjó og engar sannanir hafa enn komið fram um hvort að vélin hafi farist.

Fyrrverandi hershöfðinginn, Angus Houston, sem
stjórnar leitinni, var í ástralska hernum í 40 ár

Angus Houston mun stjórna leitaraðgerðum áfram frá samhæfingarmiðstöðinni í Perth en Houston er fyrrverandi hershöfðingi og hermaður og hefur að baki 40 ára reynslu af hermennsku.

Ríkisstjórn Ástralíu bað Houston um að fara fyrir leitinni að vélinni eftir að augun beindust að Suður-Indlandshafi og segir Houston að hann hefði ekki getað annað en að verða við þeirri bón - "Eftir allan þennan tíma í hernum þá er það bara skyldan sem kallar", segir Houston sem tekur fram að það sé mikil ábyrgð að stjórna aðgerðinni.

"Ég vona að við finnum flugvélina og ég er nokkuð viss um að við getum það á endanum", segir Houston.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga