flugfréttir
MH370: Óunnar upplýsingar úr gervitunglinu birtar á morgun

Á morgun verða allar upplýsingar úr gervitunglinu gerðar opinberar
Malasísk stjórnvöld og breska gervihnattarfyrirtækið Inmarsat tilkynntu að á morgun verða í fyrsta sinn birtar opinberlega óunnar upplýsingar úr gervitunglinu Inmarsat-3 sem hefur verið miðpunkturinn í leitinni að vélinni sem hvarf þann 8. mars.
Fjölskyldur og aðstandendur þeirra sem voru um borð í vélinni hafa krafist þess lengi að upplýsingar úr gervitunglinu
verði gerðar opinberar en óvíst er hversu skilanlegar upplýsingarnar verða fyrir almenning þar sem sennilega
verður um að ræða mikið magn af myndrænum upplýsingum sem sýna einungis línur.

Sjálfstæðir sérfræðingar og vísindamenn um allan heim geta á morgun
rýnt í gögnin frá gervitunglinu og reynt að leysa ráðgátuna um hvarf
vélarinnar
Inmarsat, sem hefur höfuðstöðvar sínar í London, hafði áður sagt að fyrirtækið hefði ekki leyfi
til að birta upplýsingarnar en nú hefur fyrirtækið, í samráði við malasísk stjórnvöld, unnið að því að birta gervitunglaupplýsingarnar opinberlega.
Með upplýsingunum er möguleiki á að sjálfstæðir sérfræðingar geti rýnt í gögnin og komið auga á einhverjar vísbendingar
sem rannsóknarhópurinn gæti hafa yfirsést og vonandi varpað ljósi á einhverjar nýjar upplýsingar.
Um er að ræða upplýsingarnar sem voru notaðar við útreikninginn á möguleguri norðurleið og suðurleið vélarinnar í
fyrri hluta leitarinnar en það svæði spannaði allt frá Kaspíahafi og lengst suður í Indlandshaf. Nokkrum dögum síðar
var tilkynnt að eftir enn frekari útreikninga út frá upplýsingunum hafi verið talið að hún hafi frekar farið suður og farist lengst
vestur af ströndum Ástralíu.
Malasíska farþegaþotan sendi frá sér sjálfkrafa merki til gervitungls er kallast "handshake" þar sem vélin lét vita af
sér á klukkutíma fresti að hún væri á flugi. Á mannamáli þá sendi gervitunglið Inmarsat-3 merki sem spyr
"ertu þarna?" og vélin sendir merki á móti "já, ég er hérna".
Engar aðrar upplýsingar voru gefnar upp og sá gervitunglið ekki staðsetningu vélarinnar.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.