flugfréttir

100 dagar frá því MH370 hvarf - Ný bók á leiðinni sem mun koma fólki á óvart

- Atvinnuflugmaður og rithöfundur segir að MH37 tengist ekki flugslysi

15. júní 2014

|

Frétt skrifuð kl. 20:38

100 dagar eru í dag frá því að malasíska farþegaþotan hvarf

Í dag eru 100 dagar frá því að malasíska farþegaþotan hvar aðfaranótt 8. mars í vor yfir Taílands-flóa á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking sem flug MH370.

Najib Razak, forsetisráðherra Malaysíu, sagði í ávarpi í dag að Malaysía væri enn staðráðin í að halda leitinni að vélinni áfram en þrátt fyrir mikla leit sem stóð yfir úr lofti, á sjó og neðansjávar, hefur ekki eitt einasta brak fundist af vélinni.

Fjölmargar vísbendingar komu fram við byrjun leitarinnar sem féllu allar um sjálft sig og hafa á þessum 100 dögum ekki komið fram neinar haldbærar vísbendingar, brak né sönnunargögn sem benda til þess að vélin hafi farist

Einu vísbendingarnar sem taldar eru vera þær sterkustu eru upplýsingar frá gervitungli en útreikningar á þeim gögnum eru talin benda sterklega til kynna að vélin hafi flogið lengst suður í Indlandshaf, orðið uppiskroppa með eldsneyti og farist í sjóinn lengst vestur af ströndum Ástralíu.

Leitin er orðin sú dýrasta sem um getur en í augnablikinu er hlé hefur verið gert á leitinni og verið að undirbúa næstu lotu sem mun hefjast í ágúst en þá verða einkafyrirtæki, sem búa yfir háþróuðum og öflugri búnaði, fengin til að leita að vélinni í Suður-Indlandshafi.

Rithöfundur og atvinnuflugmaður segir að MH370 var ekkert slys

Út mun kom bók á næstunni sem kallast "Good Night Malaysian 370: The truth behind the loss of Flight 370" en bókin er skrifuð af nýsjálenska rithöfundinum Ewan Wilson sem einnig er atvinnuflugmaður og blaðamanninum Geoff Taylor, en þeir segja að bókin muni koma fólki verulega á óvart þar sem þeir notuðu útilokunaraðferðina við að komast að líklegustu orsökinni um hvarf vélarinnar en báðir rithöfundarnir telja að ekki hafi verið um slys að ræða heldur þaulskipulagt tilræði.

Ewan Wilson og Geoff Taylor segja að nýja bókin, sem þeir eru að fara
gefa út, muni koma fólki verulega á óvart

"Í fyrsta sinn þá birtum við skipulagða greiningu á hvert vélin flaug og hver var sennilegast við stjórnvölin er vélin flaug þessa ótrúlegu leið og förum ofan í saumanna á því hver er líklegasta orsökin um afdrif hennar en bókin byrjar á því að segja frá aðstæðum þann 7. mars á flugvellinum í Kuala Lumpur", segir Ewan Wilson, sem er þekktur í Nýja-Sjálandi fyrir að hafa átt og stofnað lágfargjaldafélagið Kiwi Travel International Airlines.

Rithöfundarnir tveir, Wilson og Taylor, ferðuðust m.a. til Malaysíu vegna gerð bókarinnar þar sem þeir dvöldu í yfir mánuð og tóku viðtöl við yfirvöld, fjölskyldumeðlimi og einnig ræddu þeir við fjölskyldu flugstjórans, Zaharie Ahmad Shah.

Taylor segir að yfirvöld hafi ekki verið fús til þess að segja sannleikann. "Í virðingarskyni við ættingja þá er nauðsynlegt að sannleikurinn komi í ljós - Það sem gerðist við flug MH370 er ekkert slys. Þetta var viljandi gert og allt reiknað út og þetta hefði aldrei átt að geta gerst og sé það á ábyrgð stjórnvalda að koma hreint fram í virðingarskyni við ættingja og segja sannleikann".

Malasíski samgönguráðherrann, Hishammuddin Hussein, sagði í dag að hvarf vélarinnar hefði skilið eftir sig sársaukafullt skarð í hjörtum íbúa Malaysíu og fólks annars staðar í heiminum og yrði ekkert gefið eftir í leitinni







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga