flugfréttir
Hong Kong Airlines sagt ætla að hætta við pöntun sína í tíu A380
Airbus A330 vél Hong Kong Airlines
Sagt er að Hong Kong Airlines ætli að hætta við risaþotupöntun sína í 10 vélar af gerðinni Airbus A380 sem félagið pantaði árið 2011.
Þetta er haft eftir aðilum sem eru kunnugir málinu og er sagt að stjórn félagsins hafi ákveðið þetta eftir að Hong Kong Airlines
gerði pöntun í 70 farþegaþotur af gerðinni Airbus A320 og A320neo á flugsýningunni Farnborough Airshow en félagið
átti að fá fyrstu risaþotuna afhenta á næsta ári.
Hong Kong Airlines hafði hótað því árið 2012 að hætta við pöntun sína í risaþoturnar er Evrópusambandið
sagðist hafa áform um að setja mengunartolla og útblástursgjald á flugfélögin til að stemma stigu við kolefnaútblæstri
út í andrúmsloftið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.