flugfréttir

MH17: „Flugvélin sennilega skotin niður vegna mistaka“

22. júlí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 23:10

Hjólastellið af vélinni híft upp af braksvæðinu

Stofnun á vegum bandarísku leyniþjónustunnar telur að rússneskir aðskilnaðarsinnar hafi sennilega grandað malasísku farþegaþotunni vegna mistaka en ennþá liggur ekki ljóst fyrir hver „tók í gikkinn.“

"Sennilegasta skýringin er sú að þetta voru mistök og að flugskeytinu hafi verið skotið af aðilum sem hafa ekki hlotið nægilega þjálfun á SA-11 flugskeytakerfið sem krefst þjálfunnar og kunnáttu", segir aðili innan leyniþjónustunnar.

Leyniþjónustan tekur fyrir sambærileg atvik þar sem bæði Rússar og Bandaríkjamenn hafa óvart skotið niður farþegaþotur en kóresk flugvél var skotin niður af rússneskri orrustuþotu árið 1983 og herþota frá bandaríska sjóhernum skaut fyrir mistök niður íranska farþegaþotu árið 1988.

"Við höfum öll séð svona mistök gegnum tíðina", segir aðilinn sem kemur ekki fram undir nafni.

Samband bandarískra leyniþjónustustofnanna telur alls 17 sjálfstæðar deildir innan bandarísku ríkisstjórnarinnar

Þrátt fyrir að Bandaríkin viti vel að búið var að flytja mikið magn af hergögnum frá Rússlandi til Úkraínu þá segir leyniþjónustan ekki vita til þess að stærri útgáfan af SA-11 flugskeytakerfinu hafi verið flutt til Úkraínu áður en malasíska vélin var skotin niður en myndbönd af flutningabíl, vera að ferja slíkt flugskeytakerfi til og frá Úkraínu, var birt á Netinu á dögunum.

Einnig sagði aðili leyniþjónustunnar að mjög hæpið sé að úkraínski herinn hefði skotið niður vélina þar sem rússneskir aðskilnaðarsinnar ráða alfarlið þessu svæði og hefðu úkraínskir hermenn því þurft að berjast við þá til að komast á svæðið, skjóta niður vélina og hverfa á brott.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga