flugfréttir
Tvær orrustuþotur skotnar niður í Úkraínu í morgun
Sukhoi Su-25 orrustuþota
Tvær orrustuþotur á vegum úkraínska flughersins voru skotnað niður í morgun, sex dögum eftir að malasíska flugvélin, flug MH17, var skotin niður.
Að sögn Associated Press voru báðar orrustuþoturnar af gerðinni Sukhoi Su-25 og voru þær skotnar
niður yfir Shaktersky-svæðinu sem er nokkrum kílómetrum frá þeim stað þar sem flug MH17 var skotið niður.
Sagt er að báðir flugmennirnir hafi náð að skjóta sér úr vélunum
áður en flugskeytin hæfðu vélarnar.
Rússneskir aðskilnaðarsinnar skutu orrustuþoturnar tvær niður um kl. 10:30 í morgun að íslenskum tíma en vélarnar
voru að snúa aftur til baka til herflugvallar eftir að hafa fylgt úkraínskum herflugvélum um lofthelgina nálægt landamærum
Úkraínu og Rússlands.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.