flugfréttir

Fleiri látist í flugslysum í þessari viku en allt árið 2013

- Hrein tilviljun sem endurspeglar ekki það sem eðlilegt er í fluginu

25. júlí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 09:00

Þrjár farþegaþotur hafa farist á einni viku

Svo virðist sem að alda hörmunga í fluginu sé að ganga yfir en alls hafa fjórir mannskæðir harmleikir átt sér stað á árinu 2014 og þar af þrír á einni viku.

Þrjár farþegaþotur hafa farist núna frá því 17. júlí og hafa 461 látist í þeim atvikum sem er 25% fleiri en létust allt árið 2013 þegar 347 týndu lífi í flugslysum í heiminum samkvæmt tölfræðilegum upplýsingum frá Aviation Safety Network.

Ronan Hubert, flugslysasérfræðingu og
stofnandi B3A

Aðeins fjórum mánuðum eftir að MH370 hvarf þann 8. mars var sama flugvélategund frá sama flugfélagi skotin niður í Úkraínu þann 17. júlí sl. Sex dögum síðar ferst farþegaflugvél af gerðinni ATR 72-200 í Taíwan og tveimur dögum eftir það, í gær [24. júlí] ferst McDonnell Douglas MD-83 vél frá Air Algerie í Malí.

Í þessum fjórum flugslysum og atvikum hafa því 701 látist og þar af 462 í þessari viku en frá áramótum hafa 944 látið lífið í 85 flugslysum það sem af er þessu ári en sjaldnast er um að ræða áætlunarflug þar sem stærri farþegaþotur eiga í hlut þegar kemur að fjölda slysa.

Ronan Hubert, flugslysasérfræðingu og stofnandi svissnesku flugslysastofnunarinnar B3A, segja að enn hafi öryggi í flugi aldrei verið eins mikið og sé um hreina tilviljun að ræða hvers vegna þrjár vélar hafi farist á einni viku.

Hubert segir að það hafi svo fáir látist í flugslysum árið 2011, 2012 og árið 2013 að það hafi verið næstum ómögulegt að gera betur.

"Miðað við alla þessa flugumferð sem á sér stað í heiminum og allar þessar vélar sem eru að fara í loftið og lenda þá er hættan á að lenda í flugslysi næstum því 0", segir Hubert.

Man ekki eftir viku eins og þessari

William J. McGee, flugslysasérfræðingur hjá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA), segir að atvikin síðustu viku sé eitthvað sem er ekki í samræmi við hvað eðlilegt er.

"Það er ekkert sem bendir til að það sé eitthvað hættulegra að fljúga núna frekar og það er enn of snemmt að segja til um hvort að árið 2014 verði eitthvað óöruggara en árin á undan", segir McGee.

"Ég man ekki eftir viku eins og þessari - Malasíska vélin sem hvarf hefur setið í fólki og það hræddi fólk að heil farþegaþota geti horfið en þetta hefur allt að gera með flughræðslu. Meðan við erum að tala saman þá er fólk að deyja í umferðarslysum út um allt sem við tölum aldrei um", segir McGee.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga