flugfréttir
ANA ætlar að vera á undan Air New Zealand til að fljúga Boeing 787-9
Boeing 787-9 vél ANA (All Nippon Airways)
Japanska flugfélagið ANA (All Nippon Airways) hefur gert tilraun til að ná titlinum „Fyrsta áætlunarflug heims með Boeing 787-9“ frá Air New Zealand.
Flugfélagið japanska mun fá sína fyrstu Dreamliner-vél af lengri gerðinni, Boeing 787-9, afhenta á morgun
og verður það því annað flugfélagið til að fá vélina afhenta á eftir Air New Zealand sem fékk fyrsta eintakið þann 9. júlí.
Töluvert er síðan að fram kom að Air New Zealand verður fyrsta flugfélagið sem mun hefja áætlunarflug með Boeing 787-9
en félagið mun byrja tilraunaflug í ágústbyrjun milli Auckland og Sydney en fyrsta áætlunarflugið hefst þann 15. október
frá Auckland til Perth.
Fyrsta Boeing 787-9 vél ANA fer í afhendingarflugið á morgun frá Everett í Bandaríkjunum yfir til Tókýó og ætlar
félagið að fljúga vélinni strax þann 4. ágúst frá Haneda-flugvellinum þar sem japönskum og bandarískum skólabörnum
verður flogið yfir Fuji-eldfjallið.
Air New Zealand var fljótt að svara fyrir sig og lýsti því yfir í morgun að ANA gæti ekki "stolið" þessum titli af þeim
þar sem flug með skólabörn yfir eldfjall telst ekki sem áætlunarflug né leiguflug og sé um tilefnisflug að ræða
eða uppákomu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.