flugfréttir

Breytingar gerðar á hönnun GE9X hreyfilsins fyrir Boeing 777X

- Þynnri og sterkari hreyflablöð munu gera hreyfilinn léttari

29. ágúst 2014

|

Frétt skrifuð kl. 14:05

GE9X hreyfillinn mun koma með 16 hreyflablöðum en ekki 22 eins og GE90 hreyfillinn

General Electric hefur endurhannað GE9X hreyflana sem munu koma til með að knýja áfram framtíðarbreiðþotuna Boeing 777X.

Hreyflablöðin verða þynnri og sterkari en þau blöð sem eru að finna í þeim GE hreyflum sem eru á markaðinum í dag og einnig verða færri blöð í hreyflinum sem mun gera hann sparneytnari og hagkvæmari.

Hreyfillinn verður að hluta til smíðaður úr nýju koltrefjablönduðu efni og brúnin á hreyflablöðunum verður gerð úr stálblönduðum málmi en ekki títanium sem mun auka styrk blaðanna.

Með færri og sterkari hreyflablöðum mun loftflæðið um hreyflinn verða meira og einnig verður hann léttari en smíði hans hefst árið 2015 og munu fyrirtækin IHI Corp., Snecma, Techspace Aero og MTU Aero koma að þróuninni.

Innra ummál hreyfilsins verður 3,3 metrar og munu hreyflablöðin aðeins verða 16 talsins en þess má geta að GE90-115B hreyfillinn hefur 22 hreyflablöð.

Smíði á fyrstu Boeing 777X vélinni hefst árið 2017 og er Boeing komið með yfir 300 pantanir í vélina nú þegar frá sex viðskiptavinum og hefur General Electric fengið pöntun í næstum 700 GE9X hreyfla.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga