flugfréttir

Myndir: Fáir farþegar um borð í hálftómum vélum Malaysia Airlines

- 6.000 starfsmönnum verður sagt upp á næstunni

29. ágúst 2014

|

Frétt skrifuð kl. 22:57

Faþegum með Malaysia Airlines hefur fækkað um þriðjung og er félagið að fljúga hálftómum farþegaþotum milli sumra áfangastaða í dag eftir þær hörmungar sem hafa dunið á félaginu síðasta hálfa árið en margir eru enn smeikir við að fljúga með félaginu.

Þessar myndir voru teknar um borð í vélum félagsins af þeim farþegar sem hafa flogið með Malaysia Airlines nýlega og eins og sjá má er nóg pláss og heilu sætaraðirnar tómar.

Einn, tveir, þrír, fjórir farþegar á þessari mynd um borð í vél Malaysia Airlines

Áströlsk kona, Leanne Marotta að nafni tók mynd sem sýnir örfáa farþega um borð í fluginu hennar þann 14. ágúst og einum degi síðar setti Masterchef-sigurvegarinn Wan Ping Coombes mynd af sér og fjölskyldu sinni þar sem þau voru ein á viðskiptafarrými á leið sinni frá Ástralíu til Kuala Lumpur.

Ping Coombes og fjölskylda hennar með Business Class út af fyrir sig



Engin biðröð við innritun Malaysia Airlines einum og hálfum tíma fyrir brottför til Kuala Lumpur frá ónefndum flugvelli



6.000 starfsmönnum verður sagt upp á næstunni

Malaysia Airlines ætlar að segja upp 6.000 starfsmönnum og þar á meðal framkvæmdarstjóranum og einnig á að leggja niður flug til margra fjarlægra áfangastaða frá Kuala Lumpur.

Þetta er hluti af nýrri rekstraráætlun félagsins sem kynnt var í dag en farþegum með félaginu hefur fækkað til muna eftir að farþegaþota félagsins með 239 manns innanborðs hvarf á dularfullan hátt auk þess sem þota sömu gerðar var skotin niður yfir Úkraínu í júlí.

Um 21 þúsund manns starfa í dag hjá Malaysia Airlines en þriðjungur starfsmanna verður sagt upp og mun því fækka í herbúðum félagsins niður í 14.000 starfsmenn.

Stjórn félagsins tilkynnti að flugfélagið verði einnig tekið af verðbréfamörkuðum fyrir lok ársins og Ahmad Jauhari Yahya, framkvæmdarstjóri Malaysia Airlines, mun láta af störfum í júlí árið 2015 og verður nýr valin fyrir lok ársins.

Vonast er til þess að með þessum aðgerðum muni félagið ná aftur hagnaði innan 3 til 5 ára en næsta skref er að gera hagræðingu í leiðarkerfi félagsins

Eftir að flug MH17 var skotið niður í Úkraínu með þeim afleiðingum að 298 manns létu lífið, drógust bókanir saman um 33 prósent.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga