flugfréttir
Flugslys í Alsír: Antonov An-12 fraktvél fórst í morgun
Mynd af vélinni sem fórst (UR-DWF)
Úkraínsk fraktflugvél fórst skömmu eftir flugtak frá flugvellinum í eyðimerkurbænum Tamanrasset í Alsír í morgun með þeim afleiðingum að sjö manns létu lífið.
Vélin, sem var af gerðinni Antonov An-12, var á leið frá Glasgow í Skotlandi til Malabo í Miðbaugs-Gíneu með viðkomu
í Tamanrasset í þeim hluta Sahara sem tilheyrir Alsír.
Vélin var nýfarin í loftið frá Tamanrasset þegar samband við vélina rofnaði um kl. 1:44 í nótt að íslenskum tíma en flak
hennar fannst í fjalllendi um 15 kílómetrum frá flugvellinum.
Vélin var að flytja búnað til olíuboranna frá Skotlandi til Miðbaugs-Gíneu en vélin var á vegum Ukraine Air Alliance
þegar slysið átti sér stað.
Ekki er vitað um að neinn hafi komist lífs af en þegar er búið að finna þrjú lík.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.