flugfréttir
Nok Air fær fyrsta eintakið af nýrri útgáfu af Dash-8 Q400 NextGen
Nok Air er fyrsta flugfélagið til að fá nýju útgáfuna af Dash-8 Q400 NextGen vélinni
Bombardier hefur afhent fyrstu uppfærðu útgáfuna af Dash-8 Q400 NextGen vélinni til Nok Air sem er fyrstu flugfélagið til að taka við þessu eintaki sem tekur 86 farþega.
Nok Air er lágfargjaldafélag Thai Airways en félagið pantaði átta vélar í nóvember í fyrra en Bombardier
segir að Q400 NextGen vélin sé hagkvæmasta skrúfuvél sem völ er á í dag.
Vélin hentar mjög vél í innanlandsflugi á styttri flugleiðum en þess má geta að Flugfélag Íslands hefur verið
að skoða möguleika á að panta þá vél sem arftaka af Fokker 50 vélunum sem eru orðnar yfir 20 ára gamlar.
Patee Sarasin, framkvæmdarstjóri Nok Air, sagði að félagið hafi ákvað að snúa sér til Bombardier þar sem þeir
buðu upp á vél sem tók fleiri farþega og náði meiri hraða en vélar ATR en Q400 Next Gen munu leysa af hólmi
ATR 72 vélar félagsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.