flugfréttir

Í þriðja skiptið er lent vegna rifrildis um hallandi sætisbak

- Setti sætisbakið niður á konu sem lá sofandi fram á borðinu fyrir aftan

jacksonville, fl

2. september 2014

|

Frétt skrifuð kl. 15:04

Vélin, sem var af gerðinni Airbus A319, neyddist til að lenda í Jacksonville eftir rifrildi vegna hallandi sætisbaks

Farþegaþota frá Delta Air Lines neyddist til að lenda á flugvellinum í Jacksonville í Flórída í gærkvöldi vegna deilna milli farþega yfir hallandi sætisbaki.

Vélin var á leið frá LaGuardia-flugvellinum í New York til West Palm Beach en farþegi, sem var um borð í vélinni, Aaron Klipin, sagði í viðtali á útvarpsstöðinni News4Jax að allt byrjaði með því að kona, sem sat við hliðina á honum, hafi hallað sætisbakinu niður eins og flestir farþegar gera. Hinsvegar gerði hún sér ekki grein fyrir því að fyrir aftan hana sat hin 32 ára Amy Fine sem hafði hallað sér fram á borðið til að reyna að sofna í vélinni en hún fékk sætisbakið í höfuðið.

Konurnar tvær fóru að rífast og kalla þurfti til flugliða sem reyndi að skakka leikinn en Amy brást hin versta við, blótaði flugfreyjunni í sand og ösku og sagðist vera alveg sama um afleiðingarnar sem hegðun hennar gæti leitt til og krafðist þess að flugstjórinn myndi lenda vélinni fyrst það væri í boði.

Flugstjóri vélarinnar tilkynnti farþegum að verið væri að undirbúa öryggislendingu í Jacksonville þar sem vélin lenti og var Amy yfirheyrð af lögreglu en hún sagði að hún væri í miklu tilfinningalegu ójafnvægi eftir að báðir hundarnir hennar hefðu drepist nýlega. Amy var látin laus og fékk hún að fara með næsta flugi áfram til West Palm Beach.

Þetta er í þriðja skiptið sem farþegaþota í Bandaríkjunum þarf að lenda á miðri leið vegna rifrildis í háloftunum yfir hallandi sætisbaki á einni viku og hafa nú þrjú stærstu flugfélögin í Bandaríkjunum, American Airlines, United og Delta, öll orðið fyrir barðinu á farþegum sem hafa verið ósáttir yfir því að farþegi fyrir framan sé að halla sætisbakinu niður.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga