flugfréttir

John Travolta hefur stæði fyrir tvær þotur við heimili sitt

- Morgunþátturinn ástralski Today heimsótti John Travolta í vikunni

13. september 2014

|

Frétt skrifuð kl. 16:07

John Travolta á fimm flugvélar og er heimili hans í Ocala í Flórda tengt við flugvöll

Sá Hollywood-leikari sem er flestum flugáhugamönnum kunnugur er John Travolta en hann hefur einkaflugmannsréttindi og á alls FIMM flugvélar og þar af eina Boeing 707, Jett Clipper Ella , í litum Qantas.

Það telst munaður að vera með tvöfaldan bílskúr en fyrir þær 5 flugvélar sem John Travolta á þá dugar ekkert nema að minnsta kosti tvö flugvélastæði við heimili hans þaðan sem leikarinn getur lent og lagt vélinni með nefið beint að útidyrahurðinni.

"Við hönnuðum húsið með tilliti til flugvélanna og getum því farið heimshorna á milli með engum fyrirvara", sagði Travolta er hann kom fram í Today morgunþættunum í Ástralíu.

Heimili Travolta og fjölskyldu hans er staðsett í landi Jumbolair Aviation Estates í Ocala í Flórída en John og Kelly voru fyrstu landeigendurnir sem fóru fram á að fá aksturbrautir tengdar við Jumbolair Airport flugvöllinn upp að dyrum en brautin er 7.500 fet á lengd og þar að auki hefur flugbrautin sinn eigin einkaflugturn.

Travolta hefur verið fljúgandi sendiherra fyrir Qantas í 12 ár þar sem hann hefur flogið 50 ára gamalli Boeing 707 vél í litum félagsins sem ber skráninguna N707JT en í bakgarðinum hefur hann svo Canadair Challanger einkaþotu.

"Það hefur alltaf verið draumurinn hjá honum að hafa flugvélar í garðinum svo hann geti lagt alveg upp að húsinu þannig að ef það er matarboð þá fer maður bara út, upp í vél og í loftið", segir Kelly Preston, eiginkona Travolta.

Hér má sjá myndband úr þættinum Today á Nine Network sem var sýndur í Ástralíu í vikunni þar sem rætt var við Travolta bæði um flugið og önnur á flugtengd málefni.

Myndband:

Myndbandið úr Today-þættinum

Jumbolair-flugvöllurinn og húsið hans John Travolta á Google Maps







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga