flugfréttir

Flugmenn Air France í vikulangt verkfall

- Mikil örtröð á flugvöllum í Frakklandi

15. september 2014

|

Frétt skrifuð kl. 08:35

Mikið öngþveiti ríkir nú á flugvöllum í Frakklandi þar sem flugmenn Air France eru farnir í vikulangt verkfall

Mikil ringulreið ríkti í morgun á flugvöllum í Frakklandi eftir að Air France neyddist í dag til að fella niður yfir helming af flugferðum félagsins eftir að stór hluti flugmanna hófu vikulangt verkfall.

Air France hefur sent út 65.000 textaskilaboð til farþega sem eiga bókað flug með félaginu og er búið að kalla til 7.000 aukastarfsmenn til að takast á við þann glundroða sem ríkir á flugvöllum í Frakklandi en talið er að verkfallið muni kosta Air France um allt að 2,2 milljarða króna á dag.

Langar raðir hafa myndast á Charles de Gaulle flugvellinum í
París í morgun

Um 60% af öllum flugmönnum Air France hafa lagt niður störf sín til að mótmæla áformum Air France um að auka umsvif dótturfélagsins Transavia með því að færa verkefni frá Air France yfir til dótturfélagsins.

Talið er að verkfallið muni versna þegar líður á vikuna þegar þeir flugmenn, sem ákváðu að fella ekki niður störf sín, snúa við frá fjarlægum áfangastöðum og munu ekki geta unnið lengur í nokkra daga vegna reglna um löglegan hvíldartíma.

Air France sér fram á að geta haldið úti 48% af þeim flugferðum sem fyrirhugaðar voru í dag en verkalýsðfélög hafa varað við því að félagið gæti þurft að leggja niður 80 prósent af öllum flugferðum þegar líður á vikuna.

Það var verkalýðsfélagið SNPL sem boðaði til verkfallsins sem mun standa yfir í viku og er um að ræða stærsta verkfall hjá félaginu frá árinu 1998.

Flugmenn Air France óttast að ef félagið muni auka umsvif dótturfélagsins Transavia að þá muni það stofna starfsöryggi þeirra í hættu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga