flugfréttir
Airbus kynnir stærri handfarangursgeymslur fyrir A320
Nýju handfarangursgeymslurnar munu taka 10% meiri farangur þegar þær koma á markaðinn
Airbus hefur kynnt nýjar innréttingar um borð í A319, A320 og A321 farþegaþotunum sem innihalda m.a. stærri handfarangursgeymslur með mun meira rými.
Nýju innréttingunum verður komið fyrir í þeim vélum sem tilheyra A320 fjölskyldunni sem verða afhentar frá og með árinu
2016 en Delta Air Lines verður fyrsta flugfélagið til að fá fyrstu vélina með stærri farangursgeymslum en Delta
pantaði 30 Airbus A321 vélar árið 2013 og fimmtán til viðbótar á þessu ári.
Daniel Baubil, yfirmaður yfir A320-framleiðslunni hjá Airbus, segir að sífellt sé verið að vinna að endurbótum
og koma með nýjungar fyrir A320 vélarnar til að auka þægindin um borð.
Nýju geymslurnar hafa 10% meira pláss fyrir handfarangur m.a.v. þær A320 vélar sem eru í umferð í dag og stendur
flugfélögum til boða að skipta um geymslur um borð í þeim vélum sem þau hafa í flota sínum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.