flugfréttir

Fyrsta A380 Qatar Airways í loftinu núna á leið til Doha

18. september 2014

|

Frétt skrifuð kl. 09:36

Fyrsta risaþota Qatar Airways, A7-APA, á Flightradar24 kl. 09:07

Fyrsta risaþota Qatar Airways er nú í afhendingarflugi á leið til Doha í Qatar í þessum töluðu orðum.

Vélin fór fyrir tæpum tveimur klukkustundum í loftið frá afhendingarstöð Airbus í Hamborg en þaðan tók hún krók norðvestur yfir Norðursjó áður en hún hélt suðaustur yfir Evrópu en kl. 09:07 í morgun var vélin yfir Ungverjalandi.

Fyrsta A380 vél Qatar Airways ber skráninguna A7-APA og eru 4 mánuðir síðan að vélin var tilbúin til afhendingar en flugfélagið gerði aðfinnslur við ýmiss atriði í maí í vor þegar til stóð að taka við vélinni sem varð til þess að Airbus þurfti að lagfæra þau atriði.

Tvær aðrar A380 vélar eru tilbúnar og sú fjórða á leiðinni og mun Qatar Airways því þurfa að innleiða fjórar risaþotur inn í flotann á einu bretti en félagið pantaði tíu A380 frá Airbus á sínum tíma.

Frá athöfninni sem fram fór í gær í Hamborg er Qatar Airways tók við sinni fyrstu A380 risaþotu



„Seinkuninn okkur að kenna - ekki Airbus“

"Þetta er soldið stór biti að bæta við fjórum A380 í einu inn í leiðarkerfið en það vita allir að okkur mun takast það", sagði Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri félagsins, er hann tók við vélinni í gær í Hamborg.

"Við höfum engar íbúðir um borð, engar svítur né þjóna eins og Etihad Airways - en við höfum klassa".

"Ég held að þessi seinkun sem varð á afhendingunni á A380 sé Qatar Airways að kenna því við fórum fram á aukin gæði. Þetta er ekki Airbus að kenna", bætti Al Baker við.

Fabrice Brégier, forstjóri Airbus, sagði að Qatar Airways væri sá viðskiptavinur sem setur Airbus á ystu nöf með stórar áskoranir og miklar kröfur um að gera enn betur en duga skal.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga