flugfréttir

Forsetavél John Kerry bilar í fjórða sinn á þessu ári

- Kerry hefur flogið 910.000 kílómetra á árinu

18. október 2014

|

Frétt skrifuð kl. 2014-10-18 07:36

John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna

Ein af forsetaflugvélum Bandaríkjanna bilaði á dögunum enn og aftur sem varð til þess að í fjórða skiptið neyddist John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að fljúga heim með almennu farþegaflugi.

Forsetavél John Kerry er Boeing 757 vél sem einnig gengur undir nafninu C-32 en kyrrsetja þurfti vélina í Vín í Austurríki eftir að eldsneytisleki kom upp í vélinni.

Kerry var á leið aftur til Washington eftir fund með embættismönnum frá Evrópu og Íran um kjarnorkumál þegar í ljós kom að vélin væri biluð en Kerry sagði í tilefni að því: "Ef það erfiðasta sem kemur upp á er það að þurfa fljúga með farþegaflugi einu sinni og einu sinni þá lifuru góðu lífi".

Utanríkisráðherra Íran, Mohammad Javad Zarif, hló og svaraði: "Það eru þá ekki bara vélarnar okkar sem bila" en Íranir hafa ekki getað endurnýjað vélar sínar frá árinu 1979 vegna viðskiptahafta frá vestrænum löndum.

Boeing 757 (C-32) forsetavélin sem John Kerry notar á ferðum sínum

Kerry þurfti að sætta sig við það að hafa ekki aðgang að öruggri símalínu um borð í hinu 9 tíma flugi frá Vín til Washington.

John Kerry eyðir 50 sólarhringum á ári í háloftunum

Það sem af er árinu hefur Kerry flogið 910.000 kílómetra samkvæmt utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna sem samsvarar 1.220 flugtímum.

Flugfloti bandaríska forsetaembættisins er þó komin til ára sinna og hafa sumir gert grín að því að Bandaríkjaforseti og aðrir ráðherrar öfundi starfsbræður sína sem fljúgi um í mun nýrstárlegri og þægilegri einkaþotum.

Þetta var í fjórða skiptið sem vél John Kerry bilaði en í hin skiptin bilaði vélin í Sviss í janúar, í Bretlandi í mars í vor og í ágúst þurfti hann að snúa við til Washington á leið sinni til Hawaii.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga