flugfréttir
Lufthansa gefst upp í baráttunni við Etihad og hættir flugi til Abu Dhabi
Lufthansa mun hætta að fljúga til Abu Dhabi sumarið 2015
Lufthansa hefur ákveðið að fella niður hið daglega flug frá Frankfurt til Abu Dhabi þar sem aðalsamkeppnisaðilinn, Etihad Airways, hefur náð yfirhöndinni á markaðinum á þeirri flugleið.
Lufthansa segir m.a. í tilkynningu að eftirspurnin eftir flugsætum milli Þýskalands og Sameinuðu arabísku furstadæmanna
hafi aukist gríðarlega á síðustu árum en Etihad Airways hafi náð stærstu kökunni.
"Ástandið hefur versnað enn frekar þar sem þýska lágfargjaldafélagið airberlin hefur fengið leyfi til að deila sameinaðri farmiðaútgáfu með Etihad Airways", segir ennfremur í tilkynningunni.
"Offramboðs á flugsætum milli Frankfurt og Abu Dhabi hefur gert flugið okkar á þeirri flugleið sífellt
óhagkvæmara og erum við nú að taka afleiðingunum og munum við leggja flugið af frá og með 29. mars árið 2015.
Lufthansa hefur kvartað mikið undan ágengni arabísku flugfélaganna frá botni Persaflóa sem hafa veikt
stöðu Lufthansa á flugi til Miðausturlanda.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.