flugfréttir
Lenti í Mombasa vegna eldsneytisskorts á leið frá Indlandi
Boeing 737-700 vélin á flugvellinum í Mombasa í hádeginu í dag
Farþegaþota frá Kenya Airways þurfti í dag að lenda óvænt á flugvellinum í Mombasa í Tanzaníu eftir að eldsneytið var á þrotum eftir flug frá Indlandi.
Vélin, sem var af gerðinni Boeing 737-700 var að koma frá Delhi með 38 farþega um borð og var hún á leið
til Nairobi í Kenýa.
Í fyrstu var sagt að vélin heði orðið uppiskroppa með eldsneyti en flugfélagið sagði í tilkynningu í hádeginu í dag
að bilun hefði komið upp í eldsneytisbúnaði vélarinnar sem varð til þess að vélinni skorti eldsneyti til að halda áfram.
Þar sem flugmennirnir sáu ekki fram á að ná til Nairobi var ákveðið að lenda á Moi-flugvellinum í Mombasa.
"Það kom upp lágt eldsneytisástand um borð í vélinni á leiðinni svo hún hefði ekki geta náð til Nairobi og þessvegna
var henni beint hingað", sagði Yatich Kangogo, talsmaður flugvallarins í Mombasa.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.