flugfréttir
Of flott myndband: Twin Otter-vél Norlandair sinnir sérverkefni á Grænlandi
- "Twin Otter: Special Operation 2" var tekið á Grænlandi árið 2012
Myndbandið sýnir mjög skemmtilega ásýnd frá ýmsum sjónarhornum utan á vélinni
Hér er á ferðinni ótrúlega skemmtilegt myndband sem sýnir þau ólíku verkefni sem Twin Otter DHC-6 300 vélar Norlandair hafa verið að fást við á Grænlandi
Myndbandið, sem kallast "The Twin Otter: Special Operation 2", var tekið á nokkrum dögum í ágúst árið 2012 þegar nokkrar flugferðir voru farnar milli Daneborg og Zackenberg á austurströnd Grænlands.
Tilgangur ferðarinnar var að fljúga með frakt frá Daneborg stöðinni yfir til Zackenberg þar sem
rannsóknarstöð er staðsett sem hefur eftirlit með norðausturþjóðgarðinum á Grænlandi sem er stærsta friðlýsta landsvæði heims en fjarlægðin milli Daneborg og Zachenberg eru 25 kílómetrar.
Myndbandið er framleitt af DAFfilms og var það tekið bæði með tveimur GoPro háskerpumyndavélum og Canon 5D og sýnir
það mjög flott og sjaldgæf sjónarhorn á vélinni sem maður sér ekki á hverjum degi og það í afskektri og hrjóstrugri náttúru Grænlands.
Smellið á slóðina hér að neðan fyrir myndbandið
http://vimeo.com/62944002
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.