flugfréttir
Embraer kynnir KC-390 herflutningavélina
KC-390 herflutningavél Embraer
Brasilíski flugvélaframleiðandinn Embraer hefur ýtt út úr skýli fyrstu KC-390 herflutningavélinni í verksmiðjum sínum í Gaviao Peixoto í Brasilíu.
Aðilar og boðsgestir frá yfir 30 löndum voru viðstödd athöfnina sem fram fór í tilefni þess sl. þriðjudag en Embraer
ætlar að fljúga vélinni sitt fyrsta flug fyrir lok ársins en afhendingar munu hefjast árið 2016.
"KC-390 vélin mun verða burðarásinn í brasilíska hernum og mun hún geta sinnt verkefnum allt frá Amazón-svæðinu
og til Suðurskautslandsins en hreyflar vélarinnar munu bæði gera hana lipurri, hraðfleygari og betri en sambærilegar vélar", sagði Juniti Saito, hershöfðingi í brasilíska flughernum.
Embraer á von á því að fá pantanir í a.m.k. 32 eintök af vélinni frá þeim sex löndum sem hafa verið boðið að taka
þátt í verkefni sem eru Argentína, Chile, Kólumbía, Tékkland og Portúgal en engin af þessum
löndum hafa enn staðfest pöntun í vélina.
Embraer segir að í raun sé KC-390 vélin "sjö vélar í einni vél" þar sem hægt er að útfæra hana sem flutningavél, vél til að flytja herlið, eldsneytisvél, leitarvél, björgunarvél og slökkviliðsvél.
Þegar er byrjað að smíða aðra tilraunavél en KC-390 mun geta borið 23 tonn og flogið yfir 2.500 kílómetra fullhlaðin.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.