flugfréttir
Dreamliner-vélar Kenya Airways setja heimsmet - 99,4 prósent áreiðanleiki
Dreamliner-vél Kenya Airways í aðflugi að Chek Lap Kok flugvellinum í Hong Kong
Áreiðanleiki Dreamliner-vélanna sex sem Kenya Airways hefur fengið afhentar frá Boeing mælist nú 99,4 prósent sem er nýtt heimsmet samanborið áreiðanleika vélanna að meðaltali um allan heim sem mælist í dag 98 prósent.
Það þýðir að bilanatíðni Boeing 787-8 vélanna hjá Kenya Airways er með því lægsta sem gerist eða sem samsvarar að í 0,6 tilvikum af hverri
100 flugferðum sem félagið flýgur vélunum raskast flugáætlun vegna bilunar sem kemur upp eða tækilegs vandamáls.
Boeing segir að því megi þakka framúrskarandi verklagi meðal flugvirkja Kenya Airways sem ná að halda vélunum
einstaklega vel við.
Boeing 767 vélarnar munu hverfa úr flotanum
Þá hefur hagkvæmni Kenya Airways aukist til muna með tilkomu Dreamliner-vélanna og nær félagið fram 20 prósenta
sparneytni umfram þær Boeing 767 vélar sem munu hverfa úr flotanum fyrir lok ársins.
Kenya Airways á von á þremur Boeing 787-8 vélum til viðbótar fyrir mitt árið 2015 og mun félagið taka við
einni Boeing 777-300ER vél í viðbót.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.