flugfréttir

King Air vél brotlenti á byggingu á Wichita-flugvelli í Kansas

- Flugmaður vélarinnar og þrír á jörðu niðri létust

wichita, ks

30. október 2014

|

Frétt skrifuð kl. 22:41

Um 50 til 60 slökkviliðsmenn réðu niðurlögum eldsins

Að minnsta kosti fjórir eru látnir eftir að lítil flugvél fórst skömmu eftir flugtak í Kansas og hrapaði ofan á byggingu þar sem flugskóli með flughermum var til húsa.

Vélin var tveggja hreyfla Beechcraft B200 Super King Air 200 og fór hún í loftið frá Wichita Mid-Continent flugvellinum í Kansas þegar vélin missti afl en flugmaður vélarinnar var að gera tilraun til að snúa aftur við er vélin fórst ofan á byggingu sem FlightSafety International notar til að þjálfa flugmenn á Cessna-vélar.

Flugmaður vélarinnar var sá eini sem var um borð í vélinni og lést hann ásamt þremur á jörðu niðri en tveir þeirra voru inni í byggingunni og þá voru fimm sem slösuðust og þar af einn lífshættulega.

Þrír sem voru í byggingunni létu lífið auk flugmannsins

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) segja að vélin hafi verið í flugtaki á leið til Mena í Arizona þegar vélin missti afl á hægri hreyfi en hluti byggingarinnar féll saman og veggir hrundu er vélin kom gegnum þakið en talið er að um 100 manns hafi verið inni í byggingunni sem var á tveimur hæðum.

Ron Ryan, fyrrum eigandi eins flugfélags á vellinum, segist hafa þekkt flugmanninn sem flaug vélinni í tvo áratugi en flugmaðurinn starfaði áður sem flugumferðarstjóri og hafði einnig flogið Learjet-einkaþotu.

Ekki raskaðist flug um Wichita-flugvöllinn vegna slyssins en nokkrum flugferðum seinkaði.

Mikill eldur kom upp og steig mikill reykur til himins



Vélin sem fórst bar skráninguna N52SZ og er það þessi vél á meðfylgjandi mynd



Mynd sem tekin var úr lofti í dag







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga