flugfréttir
Hreingerningarfólk olli flóðinu um borð í risaþotu Qantas með skúringakústi
- Um 700 lítrar af vatni flæddu um vélina á leið frá LAX til MEL í sumar
Vélin var komin um klukkustund áleiðis inn á Kyrrahafið þegar vatn fór að leka um borð
Talið er að sérstakir þveglar, sem hreingerningarfólk notaði við þrif um borð í Airbus A380 vél Qantas hafi ollið lekanum sem kom upp í risaþotu félagsins í júlí í sumar þegar vatn fór að flæða um vélina.
A380 vél Qantas var á leið frá Los Angeles til Melbourne í sumar þegar vatn fór að flæða um gólfið á efra þilfari vélarinnar sem lak síðan niður á neðra þilfarið og rigndi yfir farþega.
Vélin þurfti að snúa við til baka til Los Angeles en þá hafði
40 prósent af drykkjarvatninu um borð lekið úr tönkunum og þurfti risaþotan að lenda með nefið hátt upp til að vatnið myndi ekki flæða fram í vélina í lendingu.
Vatn rigndi yfir farþega úr handfarangursgeymslum
Áströlsk flugmálayfirvöld (ATSB), telja að sérstakir þveglar, með grófu, kaðalslaga þráðum, sem starfsfólk
notaði við þrif á flugvélinni, hafi forskrúað tengi á vatnsleiðslu í galleríi um borð í risaþotunni en við rannsókn
málsins fundust leifar af þráðum sem voru fastir í leiðslunni við vatnsinntakið.
Einnig reyndist nauðsynlegt að slökkva á öllu afþreyingarkerfi um borð í sætunum af öryggisástæðum en ákveðið var að snúa við til Los Angeles þar sem vélin hefði annars
orðið uppiskroppa með drykkjarvatn til neyslu og fyrir vatn á salernum fyrir flugið til Melbourne sem tekur 14 klukkustundir.
Qantas náði að laga vandann tímabundið með því að líma samskeitin í vatnslögninni með "ducked tape" límbandi
og einnig er búið að breyta reglugerðum varðandi þrif um borð í vélinni og verður héðan í frá notast við svampkústa.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.