flugfréttir

Myndir: Seinasta augnablikið áður geimflugvélin sprakk

1. nóvember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 06:16

Þrjár myndir sem sýna er WhiteKnightTwo sleppir SpaceShipTwo sem sprakk skömmu síðar er eldflaugahreyfillinn var ræstur

Hér má sjá myndir sem hafa verið birtar af því augnabliki er geimflugvélin SpaceShipTwo sprakk í gær í tilraunaflugi sínu í Kaliforníu.

Móðurflugvélin, WhiteKnightTwo, var nýbúin að sleppa SpaceShipTwo í 45.000 fetum þegar verið var að ræsa eldflaugahreyfilinn en verið var að prófa nýja tegund af eldsneyti í fyrsta sinn á flugi en búið var að gera margar tilraunir með formúluna á jörðu niðri.

WhiteKnigthTwo fór í loftið með SpaceShipTwo klukkan 16:30 í gær að íslenskum tíma og urðu vélarnar aðskilja klukkan 17:10 eins og sést á myndunum hér að neðan.

Leroy Chiao, fyrrum geimfari hjá NASA, sagði að þar sem verið er að þróa nýja tegund af geimflugvél sem er enn á frumstígi að þá sé áhættan enn meiri en þegar um almennt geimflaug og geta svona slys því alltaf átt sér stað.

Geimfarinn Scott Parazynski sagðist vera sannfærður um að Virgin Galactic muni ná að yfirstíga þetta slys og takast að fara með farþega út í geiminn.

Myndir sem teknar voru af geimflugvél Virgin Galactic í gær þegar eldflaugahreyfillinn sprakk















  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga