flugfréttir
Skotsæti úr F-4 Phantom til sölu á netverslun Boeing Store
Skotsætið ("Ejection Seat") úr F-4 er til sölu fyrir 180.000 krónur
Það kennir ýmissa grasa á vefverslun Boeing (www.boeingstore.com) en eitt það áhugaverðasta er án efa skotsæti úr orrustuþotu.
Skotsætið er úr McDonnell Douglas F-4 Phantom II orrustuþotu sem er sá vinnuhestur sem Bandaríkjaher notaði
í Víetnamstríðinu.
Skotsætið var framleitt fyrir F-4 orrustuþoturnar af Martin-Baker Aircraft Co. Ltd og er búið að taka sætið í gegn og er það
fast við stálplötustandi og fylgir með súrefniskútur og skothaldfangið er að sjálfsögðu enn á sínum stað.
Skotsætið er til sölu fyrir 180.000 krónur en því miður fylgir ekki Mk.7 eldflauga-búnaðurinn sem skýtur viðkomandi
í burtu fyrir þann sem vill flýja óþægilegar aðstæður, leiðinlegan fund eða vandræðalegt matarboð með tengdarforeldrum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.