flugfréttir
Skærguli liturinn í vélum Ryanair gæti heyrt sögunni til
- Ryanair í viðræðum við Boeing um Sky Interior innréttinguna í 165 nýjar vélar
Guli liturinn hefur einkennt farþegarýmið um borð í vélum Ryanair í mörg ár
Ryanair er í viðræðum við Boeing um að skipta yfir í Sky Interior innréttinguna fyrir þær 165 Boeing 737-800 vélar sem félagið á eftir að fá afhentar á næstu fimm árum.
Írska lágfargjaldafélagið á von á því að fá 385 farþegaþotur frá Boeing á næstu 8 árum en til ársins 2022 mun félagið bæði
fá Boeing 737-800 vélar og Boeing 737 MAX.
Norwegian Air Shuttle var fyrsta flugfélagið til að taka við farþegaþotu frá Boeing með Sky Interior farþegarýminu
sem kemur með þæginlegri LED-lýsingu fyrir farþega og rýmri handfarangursgeymslum.
Sky Interior innréttingin í Boeing 737
Kenny Jacobs, markaðsstjóri Ryanair, vill ekki segja til um hvort að hinn skærguli litur sem einkennir vélar Ryanair muni heyra þá sögunni til. - "Nokkrir fjölmiðlar hafa spurt okkur út í hvort að hinn skærguli litur muni hverfa úr vélunum".
"Ég hef enn ekki hitt þann mann sem hefur ekki viljað fljúga með Ryanair út af gula litnum en við erum að skoða nýja möguleika
til að gera andrúmsloftið um borð þæginlegra", segir Jacobs.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.