flugfréttir
Nýtt flugfélag í Nepal hefur flugrekstur frá Kathmandu
Bombardier CRJ-200 vél Saurya Airlines
Nýtt flugfélag í Nepal hóf flugrekstur sl. þriðjudag með flugi frá Kathmandu til borgarinnar Biratnagar í austurhluta landsins.
Flugfélagið, sem nefnist Saurya Airlines, hefur aðeins eina Bombardier CRJ-200 vél í flotanum til að byrja
með en félagið á von á annarri slíkri vél eftir einn og hálfan mánuð.
Saurya Airlines ætlar sér að færa út kvíarnar í innanlandsfluginu í Nepal og er áformað að hefja einnig
flug til Dhangarhi, Nepalganj, Bhairahawa og Bhadrapur en einnig mun félagið bjóða upp á leiguflug til áfangastaða
í Himalaya-fjöllunum.
Á næsta ári ætlar félagið að hefja millilandaflug frá Kathmandu til Bombay, Delhi, Goa og einnig til Colombo á Sri Lanka.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.